NÝJUSTU HUGLEIÐINGARNAR
SKRÁÐU ÞIG Í ÁSKRIFT HÉR
ÞJÓNUSTAN
Góð vinnustaðarmenning krefst þekkingar, vinnu og þrautseigju.
Just Consulting býður vinnustöðum upp á fræðslu fyrir ólíka hópa starfsfólks, ráðgjöf í stefnumótun, innleiðingu og/eða breytingastjórnun og aðhald til að þekkingin, stefnurnar og innleiðingin nýtist sem best.
ÁRANGURINN
Framsækið og skapandi vinnuumhverfi byggist á því að tekið sé mið af fjölbreyttum sjónarmiðum og að tekið sé tillit til fjölbreyttra þarfa.
Allt starfsfólk þarf að fá að njóta sín, bæði vegna sérstöðu sinnar en líka þrátt fyrir sérstöðu sína.
Þannig skapast vinnustaðarmenning sem er líkleg til að ná settum markmiðum, hvort sem þau lúta að hagnaði, árangri eða þjónustu.
ÁHRIFIN
Framsæknir og inngildandi vinnustaðir hafa jákvæð áhrif álíf og líðan starfsfólks sem tekur þátt í að skapa jafnara og betra samfélag.
Öruggt og inngildandi starfsumhverfi stuðlar að vellíðan starfsfólks. Það hefur jákvæð áhrif á frammistöðu fólks í vinnu og einkalífi og þannig samfélagið í heild sinni.
Inngildandi starfsemi og vinnustaðarmenning er forsenda samfélagslegrar ábyrgðar.
SÓLEY
Sóley Tómadóttir á og rekur Just Consulting.
Sérfræðiþekking hennar byggir á langri reynslu af aktívisma, viðskiptum, opinberum rekstri og stjórnmálum í bland við akademíska þekkingu á femínískri breytingastjórnun.
Sóley hefur unnið að fjölmörgum umbóta-verkefnum í samstarfi við
aðila vinnumarkaðar, stjórnmálafólk og grasrótarsamtök.