FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: HAMINGJUÓSKIR

Það er rík hefð fyrir því að senda hamingjuóskir út í kosmósið á baráttudögum. Þær eru pottþétt settar fram af góðum hug og ég hef oft gert það sjálf. Mér líður samt alltaf smá skringilega með það, enda undarlegt að vera hamingjusöm yfir baráttu sem virðist engan endi ætla að taka. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er til dæmis miklu frekar tilefni til reiði en hamingju.
 

AF HVERJU MÁ ÉG EKKI BARA VERA REIÐ?


Þó samfélagsmiðlarnir mínir hafi vissulega fyllst af hamingjuóskum frá allskonar fólki á 8. mars, þá var fátt annað sem þar kom fram uppspretta hamingju. Upplýsingar um kynbundinn launamun, kynbundið ofbeldi, hundsun á stöðu, veruleika, þörfum og réttindum stelpna og kvenna sem við höfum enn ekki náð að breyta.


Hér eru nokkrar staðreyndir af handahófi:


  • Um 3% óléttra kvenna þjást af alvarlegri ógleði á meðgöngu (hyperemesis gravidarum) sem getur ógnað lífi móður og barns. Orsökin hefur varla verið rannsökuð og engin lækning er til.
  • Færri rannsóknir eru til á breytingaskeiðinu (sem hefur margvísleg áhrif á daglegt líf eiginlega allra kvenna) en á ristruflunum (sem hefur áhrif á u.þ.b. 15% karla).
  • Konur eru 47% líklegri til að meiðast alvarlega í bílslysum en karlar af því öryggisbúnaður í bílum er hannaður út frá líkömum karla.
  • Um 40% kvenna búa við lög sem skerða yfirráð þeirra yfir eigin líkama á heimsvísu.
  • Á Íslandi verða 8-9 konur á aldrinum 18-25 ára fyrir kynferðislegu ofbeldi á hverjum einasta degi.
  • Atvinnutekjur kvenna eru um 80% af atvinnutekjum karla á Íslandi.


Þessi listi er auðvitað ekki tæmandi, en er líklega nægilega langur til að tempra aðeins hamingju lesenda.
 

AF HVERJU Á ÉG AÐ VERA HAMINGJUSÖM?

 

Við erum einfaldlega ekki lengra komin en svo að okkur finnst óþægilegt að konur reiðist á meðan við sýnum því skilning og jafnvel aðdaáun þegar karlar reiðast. Ég hef ekki tölu á ábendingunum sem ég hef fengið frá vel meinandi fólki um að ég þurfi að huga að fasi og framkomu, sérstaklega þegar ég tala um jafnréttismál. Ég má ekki vera of reið, ekki of aggressíf, ég þarf að passa mig að brosa og vera vel til höfð. Ég hef tekið þetta til mín og reyni að vanda mig eins og ég mögulega get bæði í ræðu og riti. Ég veit að þannig næ ég meiri árangri.
 

Karlkyns kollegar mínir úr stjórnmálum og aktívisma eru ekki jafn uppteknir af þessu. Það dregur ekki úr trúverðugleika þeirra þó þeir hvessi sig og alls ekki ef þeir tala um jafnréttismál. Við dáumst að körlum sem láta sig málaflokkinn varða og skiljum vel að þeir reiðist yfir því óréttlæti sem dætur þeirra og systur þurfa að mæta.
 

VALDEFLING Í STAÐ HAMINGJU


Krafan um brosandi, vel til hafða og hamingjusama baráttukonu gerir í raun lítið úr baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Misréttið er svo grafalvarlegt og óþægilegt og skaðlegt að við ættum í raun öll að vera brjáluð.

Okkur skortir almennileg hvatningarorð til að nota á svona dögum. Það væri nær að segja til valdeflingar með daginn eða til árangurs með daginn heldur en til hamingju með daginn. Ég er til í næstum hvað sem er, svo lengi sem ég losna undan kröfunni um að vera hamingjusöm í baráttunni fyrir sjálfsögðum réttindum. Því það er ég ekki.

Bestu kveðjur,
Sóley

Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 6. mars 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR KVENNA
Eftir soleytomasdottir 27. febrúar 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: AFLIÐ Í KVENNASAMSTÖÐU
Eftir soleytomasdottir 20. febrúar 2026
 HUGLEIÐING VIKUNNAR: UNG, MIÐALDRA, GÖMUL EN GRÖNN
ELDRI FÆRSLUR