FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: SKILGREININGARVALD
Við höfum fjölmörg dæmi þess að heimurinn sé í raun hannaður af cis körlum fyrir cis karla. Bók Caroline Criado Perez, Invisible Women, inniheldur fjölmörg dæmi um það. Öryggisbúnaður er hannaður út frá líkömum cis karla, læknisfræðin beinir sjónum sínum að cis karlalíkömum, pontur eru miðaðar við meðalhæð cis karla, raddgreiningarkerfi voru hönnuð út frá karlarödd og svona mætti lengi telja. Svo eru til fleiri og flóknari dæmi.
KARLLÆGT RÉTTARKERFI
Undanfarnar tvær vikur hef ég fjallað um vanhæfni réttarkerfisins til að takast á við kynbundið ofbeldi. Brotaþolar veigra sér því við að kæra ofbeldi af því það er hreinlega ekki þess virði að fara í gegnum langt og sársaukafullt ferli þar sem upplifun þín er tortryggð af öllum þegar líkurnar á sakfellingu eru minni en á lottóvinningi.
Þrátt fyrir ötula baráttu grasrótarinnar, fræðsluátök, lagabreytingar, ekkóáætlanir og úrræði er staðan ekki betri en raun ber vitni. Ómeðvituð hlutdrægni, fordómar og karllægar leikreglur kerfisins koma í veg fyrir að hægt sé að takast á við kynbundið ofbeldi með sanngjörnum hætti. Kvennaathvarfið er
að jafnaði fullt, konur
komast ekki út úr ofbeldissamböndum, nauðganir eru
daglegt brauð og samúðin er oftar en ekki
meiri með gerendum en brotaþolum.
KARLLÆG UMFERÐARMENNING

Í vikunni birtist
grein frá stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl sem afhjúpar sömu viðhorf og ofbeldismenningin byggir á. Samtökin beita sér fyrir leiðréttingum á gamaldags umferðarskipulagi sem var upphaflega hannað fyrir karla til að komast til og frá vinnu á bíl.
Þrátt fyrir mikla grasrótarvinnu, þéttingu byggðar, bætta göngustíga, bættar almenningssamgöngur og hjólreiðaáætlanir er umferðarskipulag enn miðað út frá bílum á kostnað þæginda og öryggis fólks sem notar aðra samgöngumáta. Og þar á ég ekki bara við lattelepjandi hugsjónafólk, heldur börn og unglinga, gamalmenni, fatlað fólk, fátækt fólk og fólk sem af öðrum ástæðum getur ekki ekið bíl.
Þannig er karllæg umferðamenning sambærileg við karllæga ofbeldismenningu. Kerfið er hannað fyrir forréttindahópinn sem skapar hættur fyrir jaðarsetta hópa sem er kennt að passa sig á hættunum og skammast sín ef það tekst ekki.
KARLLÆG RÉTTLÆTISKENND

Í vikunni skipaði dómsmálaráðherra þrjár konur í stjórn Jafnréttissjóðs. Hvítir hægrikarlar áttu ekki orð yfir að ráðherra yrði uppvís að lögbroti, spurðu hvar jafnréttið væri í þessu og kröfðust lagfæringar. Þessir menn, sem hafa aldrei krafist breytinga vegna lögbrotanna sem framin eru gegn konum og jaðarsettu fólki í samfélaginu frá degi til dags, mega ekki til þess hugsa að sjónarmið karla verði útundan við úthlutun úr jafnréttissjóði. Dómsmálaráðherra brást við samdægurs og lagaði skipanina.

Af þessu tilefni minni ég á að löggjafinn hefur hundsað eigin lög við skipan í ráð og nefndir frá upphafi. Eins og sést á myndinni hér að ofan uppfylla aðeins þrjár af átta fastanefndum Alþingis lög um að hlutföllin megi ekki vera ýktari en 40/60. Hægrikarlarnir hafa ekki gert athugasemdir við það.
KARLLÆGT SKILGREININGARVALD
Það eru nefnilega ekki bara hlutir og tækni sem er miðað við þarfir karla. Valdakerfi samfélagsins byggir á karllægu skilgreiningarvaldi á því sem telst viðtekið, satt, mikilvægt og réttlátt. Við hugsum um stöðu og framtíð gerenda í stað brotaþola, um þarfir og þægindi bílafólks umfram öryggi gangandi og hjólandi og við bregðumst við lögbrotum sem hvítum hægrikörlum misbýður, þó ítrekað hafi verið bent á fjölda alvarlegra lögbrota gagnvart konum og jaðarsettu fólki í gegnum tíðina.
Allt samfélagið er gegnsýrt af karllægum viðhorfum. Við breytum því ekki á einni nóttu, en við getum öll hjálpast að, verið vakandi fyrir eigin skekkjum og annarra og haldið áfram að stagbæta þetta samfélag sem var hannað fyrir annan veruleika en við búum við.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


