FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: 51 ÁR FRÁ KVENNAVERKFALLI

Ég hef lifað kvennabaráttu samtímans. Ég naut þeirra forréttinda að fylgjast með konum breyta samfélaginu undir lok síðustu aldar. Þær stofnuðu Kvennaframboð og Kvennalista, Kvennaathvarf og Stígamót og komu konum að í stjórnmálum og á vinnumarkaði, þær breyttu viðhorfum, bjuggu til leikskóla fyrir öll, einsettu grunnskólana og komu á skólamáltíðum og sérkennslu og juku þannig valfrelsi kvenna, fjárhagslegt sjálfstæði og öryggi.

Þegar ég stofnaði fjölskyldu höfðu þær tryggt mér innviði sem veittu mér frelsi til að ákveða sjálf hvað ég vildi gera við líf mitt. Um það leyti var Femínistafélagið stofnað, en þar fékk ég að taka þátt í að breyta viðhorfum samfélagsins til staðalmynda, klámvæðingar og ofbeldis. Undanfarinn áratug hafa svo mylllumerkjabyltingar, kvennaverkföll og afmarkaðir hópar tekist á við ofbeldi og misrétti í stuttum sprettum, en almenn grasrótarsamtök femínískra kvenna hefur skort sárlega.
 

STAÐAN Í DAG
 

Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB tók saman nokkur atriði um stöðu kvenna, 51 ári eftir fyrsta kvennaverkfallið og endalausa baráttu allra þeirra grasrótar- og hagsmunasamtaka sem femíninstar hafa stofnað og starfrækt síðan þá. Listinn inniheldur sláandi staðreyndir um grasserandi kynbundið ofbeldi sem bitnar ekki síst á ungum konum, um ójafnt framlag og verðmætamat á vinnumarkaði, um áhrif alls þessa á heilsu kvenna og ólaunuð störf sem halda samféleginu gangandi og hvíla þyngra á herðum kvenna en karla.
 

ÞESS UTAN


Þó enn sé svona langt í land til að raunverulegt kynjajafnrétti náist, þá hefur andstaðan við femínisma aldrei verið meiri. Áhrifavaldar keppast við að upphefja fornfáleg kynhlutverk og stjórnmálafólk kroppar í innviðina sem konur hafa byggt upp undanfarna áratugi. Ekki bara harðlínuhægrið sem hefur beitt sér gegn jafnri skiptingu fæðingarorlofs milli foreldra og lagt af jafnréttis- og mannréttindastarf, heldur hafa allir flokkar tekið þátt í að draga úr þjónustu leikskóla í stórum sveitarfélögum.

Þróunin í jafnréttismálum er því miður stórhættuleg, sérstaklega fyrir konur og börn, að ekki sé talað um fólk sem tilheyrir jaðarhópum og mætir aukinni tortryggni, mótlæti, mismunun, útskúfun og ofbeldi frá degi til dags í íslensku samfélagi.
 

HVAÐ GETUM VIÐ GERT?


Í vikunni hélt Kvennahreyfing Samfylkingarinnar geggjaðan fund þar sem greinileg ólga, kraftur og hugrekki var til staðar. Þetta var í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem ég fann fyrir femínískri valdeflingu og vona að flokkurinn haldi áfram á þeirri braut. Óskandi væri ef aðrir flokkar tækju sér þetta til fyrirmyndar.

Á morgun verður svo
kynjaþing Kvenréttindafélagsins með geggjaða dagskrá á Hallveigarstöðum. Þar vona ég að grasrótin finni leiðir til að beita sér með samstilltari og kraftmeiri hætti en hún hefur gert að undanförnu.

Svo er þetta auðvitað undir okkur öllum komið. Við getum beitt okkur í fjölskyldunni, á vinnustaðnum, í félaginu, flokknum eða vinahópnum. Við eigum þetta samfélag saman og það er á okkar ábyrgð að það verði ekki aftur eins og 1975. Það væri vont fyrir okkur öll.


Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir • 16. október 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: SKILGREININGARVALD
Eftir soleytomasdottir • 9. október 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: HVERSDAGSLEIKI KYNBUNDINS OFBELDIS
Eftir soleytomasdottir • 2. október 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: AÐ SEM (EKKI) MÁ
ELDRI FÆRSLUR