FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: SYSTUR ÞESSA HEIMS

Klippan um systurina hefur farið sem eldur um sinu í vikunni. Hún er hér, fyrir þau ykkar sem ekki hafið séð hana. Hárbeitt ádeila á samfélag sem reiðir sig á ólaunaða vinnu kvenna. Algóritmi internetsins sýndi mér hana um leið og hún kom út og u.þ.b. milljón manns hafa sent mér hann til öryggis.

Svo fóru konur að tala saman. Um klippuna, nálgunina, hver sendi hverjum og hvaða áhrif það hafði.
 

HVER SENDI HVERJUM?


Ég fékk klippuna fyrst og fremst senda í hugmyndafræðilegum tilgangi. Ég hafði enga ástæðu til að taka henni persónulega, enda er ég forrréttindakona sem á bara systur og fílhrausta foreldra. Ég veit að við systurnar munum passa saman upp á foreldra okkar þegar þar að kemur, eins og við höfum passað saman uppá börnin okkar í lífsins ólgusjó.

Ég veit samt að þó ég voni að börnin mín taki samstarf okkar systra til fyrirmyndar, þá er ólíklegt að þeim takist að dreifa ábyrgðinni jafnt á milli sín. Þess vegna sendi ég þeim klippuna í persónulegum og pólitískum tilgangi. Viðbrögðin má sjá á myndinni hér að ofan. Ég held ég viti hvað Tommi fær í jólagjöf frá systur sinni.

Mér þótti vænt um að sjá karla taka klippuna persónulega til sín. Það var frábært að fá klippuna frá karli inn í spjallhóp með skilaboðunum um að þetta gætu nú karlarnir sem ættu systur tekið til skoðunar. En það var minna frábært að fá hana í aðra hópa með "hehe" athugasemdum um að þessi eða hin í hópnum hlyti nú að samsama sig þessu.
 

HVER GERIR GRÍN AÐ HVERJU?


Því trúið mér, fullt af konum gerðu það. Og sumum fannst það beinlínis óþægilegt. Af því konur sem samsama sig systurinni eru ekki bara að sinna lífsnauðsynlegri þjónustu ólaunað, heldur eru þær vanar því að gert sé lítið úr þeim fyrir vikið. Þeim er legið á hálsi fyrir að axla ábyrgðina sem enginn annar axlar, þær eru svo hlægilega passasamar og nákvæmar og allt of afskiptasamar. Ég veit að sumar upplifðu beinlínis að verið væri að hlæja að sér.

Og þá er ástæða til að staldra við. Ég efast ekki um að körlunum fjórum sem bjuggu sketsinn til hafi gengið gott eitt til og ég er viss um að þessi ádeila hefur fyrst og fremst haft jákvæð áhrif. En það þýðir ekki að þeir séu hafnir yfir gagnrýni og að ekki sé hægt að gera enn betur.
 

HLUSTUM OG REYNUM AÐ SKILJA


Það skiptir engu máli þó höfundarnir útskýri að gríninu hafi ekki verið beint að systrum þessa heims eða ég sverji í fyllstu einlægni að ég sé ekki að hlæja að þeim. Hvorugt breytir upplifunum systranna. Grínið var einfaldlega ekki gert út frá þeirra sjónarhóli.


Whitney Cicero er femínískur grínisti sem skrifaði langan pistil um flækjustig þessa gríns. Hún sagðist láta höfundana njóta vafans um hvort gríninu væri beint að konum eða kerfi, en tók fram að sjálf hefði hún aldrei getað skrifað þetta handrit. Hennar handrit hefði orðið væl. Eða hryllingsmynd. Eða mjög sorleg heimildarmynd. Af því hún er systir.

Það er mikilvægt að grínistar séu meðvitaðir um vald sitt og ábyrgð og fylgi sömu reglu og annað valdafólk; ekkert um okkur án okkar. Sú vinnuregla hefði alveg örugglega gert sketsinn enn betri og tekið af honum óþægilega núansa.
 

ÆSKILEG ÁHRIF


Eftir sem áður finnst mér klippan um systurina æðisleg í grunninn og ég vona að hún hafi eftirfarandi áhrif:


  • Að karlar hætti að fría sig ábyrgð á ólaunuðum umönnunarstörfum á kostnað kvenna.
  • Að stjórmálafólk byggi upp innviði til að þjónusta fjölskyldur sómasamlega.
  • Að grínistar haldi áfram að þróa verk sín svo ekki fari á milli mála hvert gríninu er beint.

Sjáum hvað setur.
 
Bestu kveðjur,
Sóley

Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir • 13. nóvember 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: KYNÞOKKAFULLU SÓSÍALISTARNIR
Eftir soleytomasdottir • 6. nóvember 2026
HUGTÖK VIKUNNAR: HJÓLAFÉS, SVINDLARAHEILKENNI OG MAMMVISKUBIT
Eftir soleytomasdottir • 30. október 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: HVAÐ EF ÞETTA KÆMI FYRIR ÞIG?
ELDRI FÆRSLUR