FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: HVAÐ EF ÞETTA KÆMI FYRIR ÞIG?
Ég hlustaði á mjög gott hlaðvarp Stígamóta í vikunni, þar sem Drífa Snædal ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um aðgerðir löggjafans, framkvæmdavaldsins og dómskerfisins gegn kynbundnu ofbeldi. Ólíkur reynsluheimur karla og kvenna var greinilegt þema í þættinum og það var hressandi að heyra dómsmálaráðherra tala hreint út um að lög séu ekki meira en mannanna verk og að framfylgd þeirra sé háð mannlegum vilja.
KYNJAÐAR FORSENDUR
Í þættinum rifjuðu þær upp viðhorskönnun til refsinga við vændiskaupum sem eru studdar af 84% kvenna en 47% karla. Þær ræddu um Cornell málið, þar sem 57 karlar létu hópnauðgun viðgangast og um af hverju karlar væru ekki virkari í umræðum um málaflokkinn.
Í þessu samhengi nefndi Þorbjörg konu sem hafði spurt manninn sinn hvað hann hefði gert ef hann hefði verið brotaþolinn í Cornell. Hann sagðist brjálast við tilhugsunina um að þetta hefði verið dóttir hans eða systir. Konan þurfti að árétta spurninguna: Hvað ef honum hefði verið nauðgað af sjö skólafélögum á djammi? Þá varð fátt um svör.
REYNSLUHEIMUR OG SAMKENND
Þessi spurning ruglaði meira að segja í hausnum á mér, þó ég vinni við að efast um forsendur og setja hlutina í gagnrýnið samhengi. Ég veit að það kemur fyrir að körlum sé nauðgað og það er hræðilegt. En það ofbeldi er á skjön við valdakerfið og ofbeldismenninguna sem hvílir á því. (Gagnkynhneigðir/ófatlaðir/cis) karlar búa við allt annan veruleika en konur sem læra að tileinka sér og lifa með ótta við kynbundið ofbeldi frá barnæsku.
Reynsluheimur kvenna skapar samkennd með brotaþolum. Flestar höfum við upplifað einhvers konar kynbundið ofbeldi og við höfum allar lært að óttast kynbundið ofbeldi. Við eigum auðveldara með að setja okkur í spor kvenna sem er nauðgað, búa við ofbeldi á heimilinu eða lenda í vændi en karlar, við eigum auðveldara með að skilja viðbrögð brotaþola við þessum hlutum en karlar og við erum vanari því að brot gegn okkur sé ekki tekið alvarlega en karlar. Samkenndin byggir að miklu leyti á sameiginlegum reynsluheimi.
VIRÐING ÓHÁÐ SKILNINGI
Þó spurningin hafi verið góð, og þó það væri geggjað ef karlar reyndu oftar og betur að setja sig í spor kvenna, þá er það ómögulegt. Ég get reynt að ímynda mér hvernig það er að nota hjólastól við einhverjar aðstæður, en ég get ekki ímyndað mér hvaða áhrif það hefur í lífinu öllu. Að sama skapi geta (gagnkynhneigðir/ófatlaðir/cis) karlar kannski ímyndað sér aðstæður þar sem þeim væri nauðgað, en þeir geta ekki ímyndað sér hvernig það er að búa við veruleika þar sem bekkjarfélagar þeirra, og í raun allir aðrir karlar gætu tekið uppá að nauðga þeim. Af því þó það nauðgi ekki allir karlar, þá vitum við ekki hverjir.
Karlar verða að taka þátt í að skapa öruggara samfélag út frá þessum forsendum. Þeir þurfa ekki að verja konur eða bjarga konum, heldur taka þær alvarlega, hlusta, trúa og virða. Þeir þurfa að tala saman sín á milli og koma í veg fyrir að karlar smætti, útiloki, mismuni og beiti konur ofbeldi.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



