FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGTÖK VKUNNAR: HJÓLAFÉS, SVINDLARAHEILKENNI OG MAMMVISKUBIT
Ég fann konu sem heitir Reshma Saujani á Instagram í vikunni. Kannski er hún old news fyrir ykkur, en ég er búin að vera að gleypa efnið hennar í mig.
Hér er frábær ræða
sem hún hélt um svindlaraheilkenni og
hér er önnur um móðurhlutverkið. Þessi hugleiðing er tilraun til að setja efnið hennar í samhengi við íslenskan veruleika í dag.
HJÓLAFÉS (E. BICYCLE FACE)
Reshma hóf ræðuna um svindlaraheilkennið á að hæðast að „hjólafési“, löngu úreltu læknisfræðilegu hugtaki þar sem því var haldið fram að hjólreiðar yllu útstæðum augum, samanbitnum kjálkum og þreytulegu útliti og væru þess vegna ekki fyrir konur.
Við getum hæðst að þessum hræðusluáróðri í dag. Við vitum að honum var fyrst og fremst ætlað að vinna gegn auknu (ferða)frelsi kvenna og koma í veg fyrir að konur gætu nýtt hjól til að skipuleggja baráttuna fyrir kosningarétti. En undir lok 19. aldar var þetta samhengi alls ekki augljóst. Þvert á móti hefði þessi greining þótt til marks um samsæriskenningu og ofsóknaræði á þeim tíma.
SVINDLARAHEILKENNI (E. IMPOSTOR SYNDROME)
Svindlaraheilkenni lýsir fólki sem trúir því að velgengni þeirra byggi frekar á tilviljun eða mistökum en eigin hæfni og óttast að vanhæfni þeirra komist upp. Hugtakið byggir á skorti á sjálfstrausti hjá konum og jaðarsettu fólki (sem mörg láta sig dreyma um sjálfstraust meðalkarls), styrkt af mýtunni um að fólk sé ráðið vegna kyns eða jaðarsetningar á kostnað hæfni. -Og já, ég veit að fullt af fólki, jafnvel forréttindakarlar, hafa lýst þessari tilfinningu. Hún er samt algengari og alvarlegri hjá konum og jaðarsettu fólki, sérstaklega í geirum þar sem þau eru í miklum minnihluta.
Reshma mótmælir tilurð heilkennisins enda sé möguleikinn á raunverulegu forsenda þess. Og rétt eins og hjólafésið er ekki til, þá þekkist það varla að konur og jaðarsett fólk sem nær langt í einsleitum karlageirum sé ekki hæft til starfans. Þvert á móti benda allar rannsóknir til þess að þessi hópur sé afburða hæfur enda hafa þau yfirunnið fjölmargar hindranir til að komast í þá stöðu sem þau eru í.
Reshma bendir auk þess á að áhrif þessa heilkennis eru fyrst og fremst hamlandi fyrir konur og jaðarsett fólk sem er stöðugt sagt að hrista þetta af sér. Vera bara kjarkaðari, ákveðnari og duglegri. Í staðinn þarf að breyta samfélaginu, afmá hindranir og útilokandi þætti valdakerfisins, draga úr upphafningu á karllægum eiginleikum og efasemdum um hæfni kvenna og jaðarsetts fólks.
MAMMVISKUBIT (E. MOTHERS GUILT)
Greining Reshma á óraunhæfum kröfum til mæðra er í sama anda. Á sama tíma og mæður eiga stöðugt að afla sér þekkingar, lesa bækur, fara á námskeið og treysta sérfræðingum, þá eiga þær að treysta móðureðlinu umfram heilbrigðisstarfsfólk og uppeldisfræðinga. Samhliða þessu öllu eiga þær að taka virkan þátt á vinnumarkaði, vera í góðu formi, eiga innihaldsríkt félagslíf og stunda núvitund fyrir afganginn.
Þetta er auðvitað óvinnandi vegur. Mammviskubitið er óhjákvæmilegt, enda eru mæður ýmist vondar mæður eða vanhæfir starfskraftar, þær eru annað hvort ofverndarndi eða kærulausar, eru með börnin sín of lengi á leikskólum eða bera ekki virðingu fyrir faglegu starfi leikskólanna (nema hvort tveggja sé).
Í grunninn er mammviskubit þó ekkert annað en varnarviðbragð valdakerfisins. Konur ættu ekki að þurfa að vera með samviskubit. Það er ekki konum að kenna að skipulag vinnumarkaðar og leikskóla fer ekki saman, ekki frekar en að karlar axla minni ábyrgð á börnum og heimilisstörfum án þess að vera dæmdir fyrir það.
ÁHRIF HUGTAKANNA
Þessi þrjú hugtök eiga það sameiginlegt að ógna ímynd kvenna. Þau hafa áhrif af því að fegurð, hreinleiki og móðurhlutverkið eru samofin samfélagslegum hugmyndum um kvenleika. Konur vilja ekki vera ljótar (með hjólafés), þær vilja ekki að efast sé um heiðarleika þeirra (svindlaraheilkennið) og þær mega alls ekki vera vanhæfar mæður (mammviskubit).
Þó allt þetta sé enn hluti af kvenleikanum og þar með sjálfsmynd kvenna, þá vitum við að hjólafés er ekki til. Við verðum ekki ljótar af að hjóla. Hin tvö hugtökin eru jafn fáránleg. Konur og jaðarsett fólk hefur að jafnaði lagt meira á sig til að komast áfram á vinnumarkaði og mæður bera ósanngjarnt mikla ábyrgð á að samfélagið funkeri þrátt fyrir meingallaða innviði. Hættum að skamma konur. Breytum frekar því sem þarf að breyta og gerum samfélagið sanngjarnara. Vonandi geta þá komandi kynslóðir hæðst að svindlaraheilkenni og mammviskubiti eins og við hæðumst að hjólafési í dag.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



