FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: OFBELDISMAÐUR SEM KISTUBERI

Stundum vildi ég óska að lífið væri aðeins einfaldara. Að það væru fleiri algildar reglur sem hvorki væri hægt að sveigja né brjóta. Núna væri til dæmis fínt að hafa bara eina algilda reglu um kynferðisbrotamenn. Hvað mega þeir gera, hvar og hvenær?
 

ÓVINSÆLASTI MAÐUR NOREGS (fyrir utan you know who)


Marius Borg Høiby er annálaður hrotti sem afplánar dóm fyrir a.m.k. tvær nauðganir, heimilisofbeldi og sitt hvað fleira. Hann hefur verið kærður fyrir miklu fleiri ofbeldisverknaði en sýnir ekki minnstu iðrun.

Marius ólst upp í norsku konungsfjölskyldunni frá fjögurra ára aldri. Hann er sonur Mette-Marit drottningar og stjúpsonur Hákons Noregskonungs. Þegar mamma hans giftist inn í fjölskylduna tóku Haraldur og Sonja honum sem eigin barnabarni og sambandið hefur verið gott eftir atvikum síðan þá.

 

ELSKAÐASTI MAÐUR NOREGS


Eins og kom fram í síðustu hugleiðingu var Haraldur elskaðasti maður Noregs. Hann leyfði sér að hlæja og gráta, talaði af virðingu við og um fólk, var passlega lúðalegur í fasi og framkomu og auðmjúkur gagnvart viðfangsefnum og vandamálum lífsins.

Svo tók hann tengda- og stjúpbörnum með opnari og innilegri hætti en tíðkast innan (konungs)fjölskyldna. Sem móðir hálffullorðinna barna veit ég að það getur verið krefjandi að láta sér líka við tengdabörn, þó mín hafi hingað til ekki verið nærri eins skrautleg og Mette-Marit og Durek Verrett og þeim hafi ekki fylgt stjúpbörn. Hvað þá glæpastjúpbörn.

 

HOLLUSTUKLEMMAN


Undanfarið hefur mikil umræða skapast um að Marius hafi verið kistuberi afa síns við opinbera athöfn í síðustu viku. Ég skil það vel. Það hefur eflaust verið ömurlegt fyrir þolendur hans að sjá hann fá allskonar undanþágur og hafa myndir af honum í öllum fjölmiðlum.

Að jafnaði finnst mér ofbeldismenn ekki eiga heimtingu á neinu öðru en öruggu rými í fangelsi. Þeir eiga að hafa hægt um sig, forðast að triggera brotaþola sína og vinna í sínum málum. En hataðir menn eiga líka fólk sem þykir vænt um þá. Þeir eiga foreldra og systkini og ömmur og afa sem þurfa að takast á við margvíslegar hollustuklemmur, sér í lagi á stórum stundum sorgar eða gleði í fjölskyldum. 

Ég hef samúð með fjölskyldunni hans. Mömmu hans sem er alvarlega veik, stjúpanum sem varð kóngur um leið og hann missti pabba sinn, ömmu hans sem var að missa manninn sinn og systkinum hans sem eru líka að fóta sig í nýju hlutverki. Til viðbótar við sorgina sem þau eru að glíma við á sama tíma og þau eiga að vera sameiningartákn og hughreystandi aðilar, þá eru þau í hollustuklemmu vegna Mariusar. Vilja kannski hafa hann með í sorginni, vilja að hann heiðri minningu afa síns, en vilja samt ekki særa meira en orðið er.

 

SLEPPUM BARA OFBELDI


Þegar elskaðasti maður Noregs er óvart afi óvinsælasta manns Noregs og tekur upp á því að deyja skapast óbærileg togstreita. Þetta er örugglega ekki eina dæmið, en líklega það ýktasta. Ég get ekki leyst úr henni, en til að fækka svona uppákomum í framtíðinni mæli ég eindregið með því að fólk sleppi því að nauðga eða beita annars konar ofbeldi. Verum meira eins og Haraldur og minna eins og Marius. Þá verður heimurinn örlítið betri.

Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 28. ágúst 2026
MINNINGARORÐ: HARALDUR NOREGSKONUNGUR
Eftir soleytomasdottir 21. ágúst 2026
MEÐMÆLI VIKUNNAR: TEAM PØLSA Á RÚV!
Eftir soleytomasdottir 14. ágúst 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: FREKJUKARLAKÖST
ELDRI FÆRSLUR