FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: UNG, MIÐALDRA, GÖMUL EN GRÖNN

Ég er hraust 51 árs kona. Ég er þakklát fyrir heilsuna og líkamann minn sem hefur farið með mig í fullt af ævintýrum, búið til tvö börn, fætt þau og fóðrað. Þessi líkami er flinkur á skíðum, getur hlaupið ágætar vegalengdir og er að læra lyftingar. Hann hefur aldrei valdið teljandi vandræðum. Ég hef aldrei brotið bein, aldrei verið svæfð og aldrei verið lögð inn á spítala (7-9-13). Ég þarf ekki hjálpartæki, ég get fundið föt sem henta mér í langflestum fataverslunum og það er enginn sem dæmir mig af því líkaminn minn sé einhvern veginn öðruvísi en fólk á að venjast.
 

SAMT


Þrátt fyrir allt ofangreint hef ég aldrei verið fyllilega sátt við líkamann minn. Ég var búin að læra að ég væri í feitara lagi áður en ég komst á gelgjuna. Sem var rangt. Fljótlega lærði ég svo að velja ekki föt sem sýndu mínar bestu hliðar, heldur þau sem feldu þær verstu. Til að forðast misskilning, þá er ég ekki haldin neinu sjálfshatri. Það er til fullt af konum sem líður miklu verr en mér. Mér finnst ég sæt og fín, en ég vildi samt óska að það væri aðeins minna af þessu og aðeins meira af hinu.
 

SKILABOÐIN OG RAUNVERULEIKINN


Á kynþroskaskeiðinu þyngjast stúlkur um 10-15 kíló að jafnaði. Á meðgöngu er talið eðilegt konur þyngist a.m.k. um annað eins og flestar konur sitja eftir með 1-4 kíló eftir hverja meðgöngu. Á breytingaskeiðinu þyngjast konur um 2-10 kíló að jafnaði.

Mér hefur aldrei verið sagt að þyngdaraukning á kynþroska- eða breytingaskeiði sé í lagi, þyki eðlileg, hvað þá eftirsóknarverð. Þvert á móti lærði ég snemma að eitt það versta sem gæti komið fyrir mig í lífinu væri að fitna. Ég mátti ekki fitna á gelgjunni. Alls ekki of mikið á meðgöngu. Varð helst að ná öllu af mér á milli meðgangna og eftir þær og núna á ég að berjast með kjafti og klóm gegn náttúrulögmálum breytingaskeiðsins.

Yfir 40% stelpna fara í sína fyrstu megrun á kynþroskaskeiðinu, 4-8% kvenna reyna megrun á meðan á meðgöngu stendur, yfir 50% kvenna reyna megrun eftir barneignir og 70-80% kvenna reyna megrun á breytingaskeiðinu. Ég get ekki lýst öllum óumbeðnu ráðunum sem ég hef fengið um að vikta matinn minn, sleppa kolvetnum, glúteini, kjöti, ákveðnum tegundum af þessu, hinu eða helst bara ljóstillífa á breytingaskeiðinu. Þrátt fyrir að allt heilbrigðisstarfsfólk sé sammála um að hefðbundnir megrunarkúrar stuðli að meiri þyngdaraukningu til lengri tíma.
 

PÓLÍTÍKIN


Svo það sé sagt, þá geri ég mér grein fyrir að offita getur haft neikvæð áhrif á líf og heilsu fólks. Ég hef bara aldrei verið neitt nálægt henni, ekki frekar en meginþorri kvennanna sem prófuðu alla megrunarkúrana. Ótti minn og óánægja snýst ekki um heilsu, enda engin ástæða til. Hann snýst um staðalmyndir og innprentaða fitufordóma.

Þessi þörf samfélagsins fyrir að hemja líkamsþynd kvenna sprettur úr sama jarðvegi og önnur stjórntæki yfir líkömum og lífi kvenna. Hún snýst ekki um hagsmuni kvenna, ekki um þarfir þeirra, líðan eða heilbrigði. Þessi þörf snýst að stærstu leyti um að uppfylla löngu úreltar staðalmyndir um útlit, hlutverk og sjálfsákvörðunarrétt kvenna.

Má ég biðja um frið fyrir kröfunni um að vera gömul og grönn? Getum við plís leyft konum að þroskast og þróast og vera þær sjálfar? Getum við tryggt konum heilbrigðisþjónustu og aðstoð þegar þarf, en samt fagnað fjölbreytileika þeirra?

Bestu kveðjur,

Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 18. febrúar 2026
MEIRA UM LEIKSKÓLANA
Eftir soleytomasdottir 17. febrúar 2026
BREYTT REYKJAVÍKURMÓDEL, SAMA VANDAMÁL
Eftir soleytomasdottir 13. febrúar 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: TRIGGERAR, SLAUFUNARMENNING OG TILKALL
ELDRI FÆRSLUR