FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: AFLIÐ Í KVENNASAMSTÖÐU

Fyrir nokkru frétti ég að Julie Bindel væri á leið til landsins. Kona sem ég dáðist að í upphafi aldarinnar fyrir hugrekki og róttækni í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og markaðsvæðingu á líkömum kvenna. Á svipuðum tíma og ég dáðist að J.K. Rowling fyrir hugmyndaauðgi og skáldskapargáfu. Síðan hefur ansi mikið breyst.
 

ÚRELDING KYNJATVÍHYGGJUNNAR


Við erum öll stöðugt að læra. Í upphafi aldarinnar var íslenskur femínismi bæði forréttindamiðaður og byggður á tvíhyggju. Síðan þá hefur íslenskt samfélag þróast hratt, skápar hafa opnast og jaðarsett fólk hefur tekið sér pláss. Við hvítu forréttindakonurnar höfum lært talsvert og baráttan öll orðið meira inngildandi.

Sjálf var ég orðin rígfullorðin þegar ég lærði um fjölbreytileika kynvitundar, kyntjáningar, og kyneinkenna. Að öðrum ólöstuðum á ég Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur og Kitty Anderson persónulega mikið að þakka í þeim efnum, en þær voru brautryðjendurnir á þeim tíma. Allt það fólk sem hefur komið að stofnun og starfsemi 
Trans Íslands og Intersex Íslands hefur breytt íslensku samfélagi til hins betra.

Íslenska kvennahreyfingin byggir í dag á samstarfi fólks með ólíkan bakgrunn, af ólíkum stéttum, frá ólíkum löndum, með sýnilegar og ósýnilegar fatlanir, tungumálakunnáttu, reynsluheim, þarfir, væntingar og hæfileika. Hún er fjölbreyttari, sterkari og kraftmeiri en nokkru sinni.
 

HEIMSÓKN BINDEL


Áður en Bindel kom til landsins reyndi hún að fá fundi með öllum helstu hagsmunasamtökum og einstaklingum sem hafa tekið þátt í jafnréttis- og mannréttindastarfi á Íslandi. Ég veit ekki um neina manneskju sem þáði boð um fund. En ég veit að það var reynt að útskýra fyrir henni að styrkur íslenskrar kvennahreyfingar fælist fyrst og fremst í samstöðu fólks með ólíkan bakgrunn og reynsluheim og það stæði ekki til að breyta því.

Einu fréttirnar sem borist hafa af heimsókn Bindel koma úr hlaðvarpsviðtali við karl sem hefur lagt sig fram um að grafa undan kvennahreyfingunni með ráðum og dáð. Þar segir hún hluti sem mig langar ekki að hafa eftir henni og dregur þá ályktun að viðurkenning á tilvist trans fólks og þátttaka þeirra í kvennabaráttunni sé hættuleg, slæm og afturför í jafnréttismálum.

Fyrir utan ömurlegan málflutning Bindel var tragíkómískt að fylgjast með þáttastjórnandanum taka undir áhyggjur hennar af kynbundnu ofbeldi og markaðsvæðingu á líkömum kvenna. Og að hún skyldi halda að þar væri bandamaður á ferð.
 

VEKUR VON


Skoðanir Julie Bindel eru afmennskandi, særandi, útilokandi og skaðlegar. Sérstaklega í Bretlandi þar sem hún hefur umtalsverð áhrif. En það vekur hjá mér einlæga von að hún skuli ekki fá neinn hljómgrunn fyrir skoðanir sínar hér á Íslandi. Það er í alvörunni fagnaðarefni að transfóbískt fólk eigi sér bara vettvang í afturhaldshlaðvörpum á Íslandi. Og að kvennahreyfingin standi keik þegar á reynir.

Höldum áfram svona. Stöndum saman gegn öllum tilraunum til að sundra, útiloka, mismuna eða tala niður konur, kvár og jaðarsett fólk. Stöndum með mannréttinum og höldum áfram að byggja upp viðurkenningu, virðingu, samkennd, jafnrétti og öryggi fyrir okkur öll.

Bestu kveðjur,

Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 20. febrúar 2026
 HUGLEIÐING VIKUNNAR: UNG, MIÐALDRA, GÖMUL EN GRÖNN
Eftir soleytomasdottir 18. febrúar 2026
MEIRA UM LEIKSKÓLANA
Eftir soleytomasdottir 17. febrúar 2026
BREYTT REYKJAVÍKURMÓDEL, SAMA VANDAMÁL
ELDRI FÆRSLUR