FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: AFTURHALD OG BAKSLAG
Í námskeiðum mínum geng ég út frá því að við séum langflest góðar manneskjur sem langi til að hafa jákvæð árhrif á samfélagið og koma almennilega fram við fólk. Mismunun og hindranir valdakerfisins skýri ég með samfélagslegri arfleifð, að það byggi enn á gömlum gildum samfélags sem var mótað og þróað í gamla daga, af forréttindakörlum sem hugsuðu lítið út í reynsluheim eða þarfir kvenna og jaðarsetts fólks.
Samfélagið er enn að aðlagast umfangsmiklum breytingum undanfarinna áratuga, þar sem konur taka þátt á vinnumarkaði, fatlað fólk tekur þátt í samfélaginu almennt, hinsegin fólk er komið út úr allskonar skápum og fjöldi fólks hefur flust til landsins með allskonar litarhaft, tungumálakunnáttu og menningaráherslur. Þetta krefst þess að við aðlögum kerfi og afmáum hindranir svo öll séu metin að verðleikum.
Í námskeiðunum geng ég út frá því að mismunun og útilokun eigi sér í langflestum tilfellum stað vegna ómeðvitaðrar hlutdrægni, þar sem fólk skilur ekki að hegðun þeirra, ákvarðanir eða forgangsröðun viðheldi eða skapi hindranir fyrir annað fólk. Ég kenni fólki að greina og skilja hegðun sem getur haft neikvæð, útilokandi eða mismunandi áhrif og bendi á leiðir sem hægt er að fara til að forðast slíkt.
Í námskeiðunum tek ég sérstaklega fram að valdakerfið sé ekki til staðar út af vondum körlum með illan ásetning. Ég trúi því að mestu leyti, en að undanförnu hafa þó runnið æ oftar á mig tvær grímur.
AFTURHALD
Í gegnum tíðina hef ég bara örsjaldan upplifað andúð eða illsku í rökræðum um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu. Í langflestum tilfellum hefur andstaðan byggt á skilnings- eða viljaleysi gagnvart frekari framþróun, en eiginlega aldrei hefur fólk viljað afnema það sem hefur áunnist.
Nú ber þó svo við að æ oftar heyrast afturhaldsraddir með hugmyndum sem ég hélt að við myndum aldrei heyra aftur. Í Bandaríkjunum er búið að banna jafnréttisstefnur og þungunarrof, breskir dómstólar samþykkja aðeins tvö kyn og nýsjálenska ríkisstjórnin hefur afnumið jafnlaunáætlanir. Á Íslandi er orðræðan sömuleiðis að harðna, undir formerkjum einhvers konar viðnáms við meintri rétthugsun.
PÓLÍTÍSK RÉTTHUGSUN
Förum þá aftur í upphaf þessarar hugleiðingar. Meint rétthugsun snýst um að vera gott hvert við annað. Hún snýst um að aðlaga samfélag sem var búið til og þróað af forréttindakörlum að fjöbreytileika sem gleymdist að taka tillit til. Hún snýst um að við viðurkennum og virðum fólk eins og það er, óháð kyni, kynhneigð, litarhafti, uppruna, líkamsgerð, tungumálakunnáttu, stétt eða stöðu, að við greinum innbyggðar hindranir í samfélaginu og lögum það sem lagað verður. Meint rétthugsun snýst um að búa til samfélag þar sem allt fólk getur tekið þátt á eigin forsendum, frjálst frá ofbeldi, áreitni, fordómum og útilokun. Um að búa til samfélag þar sem allt fólk hefur tækifæri til jafns við hvíta forréttindakarla.
Mér er fyrirmunað að skilja hvernig þessi meinta rétthugsun getur ógnað nokkurri manneskju. Sú aðlögun sem hefur verið að eiga sér stað er vissulega flókin, hún krefst þess að við lærum helling, virðum hluti sem við eigum erfitt með að skilja og leggjum ýmislegt á okkur til að vera almennileg hvert við annað. En hún tekur ekki neitt frá neinu okkar, nema ef vera skyldi fordóma og hatur. Ég er alveg til í að fórna því.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki