FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:

HUGLEIÐING VIKUNNAR: SKAÐLEGIR SÖGULEGIR KJÁNAR

Þrælahald var afnumið í Bandaríkjunum árið 1865. Það var gríðarlega umdeild ákvörðun, sem margvíslegum rökum var reynt að beita gegn. Talið var að afnámið gæti leitt til blöndunar kynþátta sem aftur hefði för með sér samfélagslega óreglu, aukið ofbeldi og uppbrot á menningarhefðum. Afnámið átti líka að hafa skaðleg áhrif á efnahag Bandaríkjanna og Vesturlanda og fara þvert gegn hagsmunum svarts fólks sem þurfti á „eigendum“ sínum að halda.


Árið 1961 voru kvennataxtar afnumdir í kjarasamningum á Íslandi. Sitt sýnist hverjum um þann gjörning, enda voru konur ekki fyrirvinnur, þær voru líkamlega veikari, óáreiðanlegri starfskraftar og höfðu engan áhuga á hærri launum. Þetta átti líka að setja fyrirtæki á hausinn og sliga þjóðarbúið, enda yrði kostnaðurinn allt of mikill.


Árið 1996 var staðfest samvist samkynhneigðra leidd í lög og árið 2010 var hjónaband samkynhneigðra formlega leyft á Íslandi. Þessu var harkalega mótmælt af fólki sem taldi þarna farið gegn kristilegum gildum, að ákvörðunin ógnaði kjarnafjölskyldunni sem hornsteini samfélagsins enda grundvallaðist hjónabandið á sambandi karls og konu. Auk þess þótti varasamt fyrir börn að alast upp hjá samkynhneigðum foreldrum, þau þyrftu á móður og föður að halda.


Hægt væri að skrifa marga kílómetra um rökin sem notuð hafa verið gegn framförum mannréttinda í gegnum tíðina. Í þeim er að finna mjög skýr þemu:



  • Breytingarnar ógna mikilvægri menningu sem þarf að verja fyrir ágangi.
  • Breytingarnar eru hættulegar fyrir fólk og/eða samfélagið.
  • Breytingarnar eru ekki góðar fyrir þann hóp sem þær eiga að þjóna.
  • Breytingarnar hafa skaðleg áhrif á efnhag.


Engin þessara raka hafa reynst eiga stoð í raunveruleikanum. Menningin hefur orðið ríkari og betri, hætturnar voru hvorki raunverulegar fyrir fólk né samfélög, breytingarnar þjónuðu hagsmunum hópanna og höfðu ekki efnahagslegan skaða í för með sér til lengri tíma.

 

SKAÐLEG AFTURHALDSÖFL

 

Þróun mannréttinda hefur sem betur fer verið línuleg uppávið í gegnum tímans rás. Öllum framförum hafa fylgt bakslög, alltaf hafa verið afturhaldsöfl sem tortryggja og mótmæla og einhverjir hópar hafa tekið lengri tíma en aðrir í að samþykkja framfarirnar. Að jafnaði ríkir þó almenn sátt um ákvarðanirnar þrjár hér að ofan og í dag þykja rökin helst til kjánaleg sem beitt var gegn þeim.


Samt keppast afturhaldssöfl samtímans við að tortryggja hvers kyns mannréttindabaráttu með ámóta haldbærum rökum. Cis konum á að standa ógn af trans konum á kvennaklósettum, íslenskri tungu á að stafa óskapleg ógn af fjölmenningu og velferðakerfið er víst með að sligast ef við bjóðum fylgdarlausu barni frá Kólumbíu alþjóðlega vernd. Það er huggun harmi gegn að þessi afturhaldsöfl munu eiga eftir að mæta sömu örlögum og forverar þeirra í sögubókum framtíðarinnar. Þau eiga eftir að enda uppi sem sögulegir kjánar sem særðu, meiddu og þvældust fyrir sjálfsögðum mannréttindum.

 

MANNRÉTTINDI ERU EKKI ÖFGAKENND


Að lokum er rétt að hafna enn og aftur rökleysunni um að öfgar kalli á öfga. Að uppgangur öfgahægris meðal ungra karla (sem sum vilja kalla hugmyndafræðilega skautun) sé að eiga sér stað af því að baráttan fyrir mannréttindum (sem sum vilja kalla vókisma) sé svo öfgakennd. Það er ekkert öfgakennt við jafnrétti eða mannréttindi. Hvorugt hefur nokkurn tímann leitt til verri stöðu fyrir nokkra manneskju. Það sem veldur skaða eru afturhaldsöfl sem nýta tjáningarfrelsið til að ala á rasisma, kvenfyrirlitningu, hinsegin- og trans hatri.


Ákvarðanirnar þrjár hér að ofan höfðu engin skaðleg áhrif. Þær mörkuðu einfaldlega upphafið að frelsi og jafnrétti þeirra hópa sem þær náðu til án þess að valda fólki eða samfélögum nokkurn skaða. Enn er langt í land til að allt fólk geti búið við jafnrétti, frið og öryggi og fyrir því þurfum við að halda áfram að beita okkur, þó „sumir vilji afturábak en aðrir standi í stað“.


Bestu kveðjur,

Sóley

 

Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 13. júní 2025
HUGLEIÐING VIKUNNAR: REIÐAR KONUR
Eftir soleytomasdottir 6. júní 2025
 HUGLEIÐING VIKUNNAR: ÞRÓUN ÍSLENSKS RASISMA
Eftir soleytomasdottir 23. maí 2025
HUGLEIÐING VIKUNNAR: AFTURHALD OG BAKSLAG
ELDRI FÆRSLUR